Biggi Nielsen á klöppunum í Vestmannaeyjum, úteyjar í baksýn

Trommuleikari · Tónskáld

Biggi
Nielsen

Portrett af Bigga Nielsen

Um Bigga

Taktur, náttúra og Eyjarnar

Birgir Nielsen fæddist árið 1974 og mætti átta ára gamall í fyrsta trommutímann hjá Guðmundi Steingrímssyni, Papa Jazz. Síðar lærði hann hjá Gunnlaugi Briem og nam við Tónlistarskóla FÍH 1993–1995. Hann hefur kennt slagverk frá 1998 og verið aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Vestmannaeyja frá 2018.

Frá því Biggi flutti til Eyja árið 2010 hefur hann verið burðarás í tónlistarlífinu: á Eyjatónleikunum í Hörpu, með Blítt og létt hópnum, sem hljómsveitarstjóri Leikfélags Vestmannaeyja og sem stofnandi og verkefnastjóri Hljómeyjar. Með Landi og sonum hefur hann komið að fjórum þjóðhátíðarlögum, þar á meðal Lífið er yndislegt.

Í nýjustu verkum sínum fléttar hann hljóðum úr náttúru Eyjanna inn í tónlistina, allt frá hnúfubökum til mjaldrasystranna Litlu gráar og Litlu hvítar.

3Sólóplötur
4Þjóðhátíðarlög með Landi og sonum
2024Bæjarlistamaður Vestmannaeyja

Ferillinn

Fjórir áratugir
af takti

Biggi Nielsen á yngri árum
  1. 8 áraFyrsti trommutíminnHjá Guðmundi Steingrímssyni, Papa Jazz. Síðar nám hjá Gunnlaugi Briem.
  2. 1993–95Tónlistarskóli FÍHNám í trommuleik.
  3. 1998SlagverkskennariAðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Vestmannaeyja frá 2018.
  4. 2010Til EyjaHljómsveitarstjóri Leikfélags Vestmannaeyja 2010–2013. Blítt og létt 2009–2019.
  5. 2012–23Eyjatónleikar í HörpuRocky Horror með Leikfélaginu valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin 2023.
  6. 2024BæjarlistamaðurÚtnefndur bæjarlistamaður Vestmannaeyja. Þriðja sólóplatan, Whales Of Iceland, kom út 2025.

Útgáfa

Plötur & lög

Plötuumslag Whales Of IcelandWhales Of IcelandSólóplata · 2025 Plötuumslag ÚtiklefinnÚtiklefinnSólóplata Plötuumslag Svartur 2Svartur 2Sólóplata · 2015
Þjóðhátíðarlög
Lífið er yndislegt
Í Dalnum
Vinátta
Brim og boðaföll
Með Landi og sonumFjögur þjóðhátíðarlög

EinnigSounion · The Sea (EP) · Towns, með Youyou · Gregori var hér · Heimaklettur · Crazy Bananas

Á döfinni

Komandi
verkefni

  • Sæki viðburði…
Biggi Nielsen við trommusettið á sviði

Póstlisti

Fáðu fréttirnar fyrst

Ný tónlist, tónleikar og fréttir af Hljómey, beint í pósthólfið. Enginn ruslpóstur.

Um persónuvernd

Biggi Nielsen (Birgir Nielsen Þórsson) ber ábyrgð á póstlistanum. Netfangið er eingöngu notað til að senda fréttir af nýrri tónlist, tónleikum og því sem Biggi er að gera, og það er ekki afhent öðrum. Það er geymt í gagnagrunni vefsins og hjá Resend, bandarískri póstþjónustu sem sendir póstinn. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með hlekk neðst í hverjum pósti eða með því að senda póst á biggi@nielsen.is.

Bókanir

Bókaðu
Bigga

Tónleikar, hátíðir, upptökur, fyrirtækjaviðburðir og einkasamkvæmi.

Biggi Nielsen með kúrekahatt